Sterkir innviðir eru forsenda sterkra samfélaga. Við vinnum að bættum innviðum á Vestfjörðum.

Síðustu ár hafa nýsköpun, frumkvöðlastarf og nýjar atvinnugreinar stuðlað að miklum vexti á Vestfjörðum. Sterkir innviðir eru forsenda áframhaldandi uppbyggingar á svæðinu með tilheyrandi aukningu lífsgæða og framlagi til þjóðarbúsins. Að baki félaginu standa kraftmikil fyrirtæki á Vestfjörðum sem öll vilja tryggja vöxt og velsæld samfélagsins.

Um Innviðafélag Vestfjarða

Slakir innviðir
skerða lífsgæði

Innviðaskuld á Vestfjörðum leiðir til ótryggra samgangna og aðgengi að orku, sjálfsagðra lífsgæða sem Íslendingar vilja búa við. Ævintýralegur uppgangur Vestfirsks atvinnulífs síðustu misseri var mögulegur þrátt fyrir slaka innviði. En nú er lag að bæta.

140%

Aukning í tekjum 100 stærstu fyrirtækja Vestfjarða á árunum 2016-2022.

Gögn: Hagstofan.

81%

Fjöldi íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum sem veigra sér að fara milli byggðarlaga að vetri til.

Gögn: KPMG / Vestfjarðastofa

61

Fjöldi snjóflóða sem féllu á Súðavíkurhlíð árið 2018.

Gögn: KPMG / Vestfjarðastofa

Innviðafélag Vestfjarða vill sterka framtíðarsýn og átak í uppbygginu innviða á Vestfjörðum til að styðja við áframhald efnahagsævintýrisins sem nú á sér stað.

Nýjar leiðir til fjármögnunar, aukinn kraftur og forgangsröðun og samstarf atvinnulífs, íbúa og hins opinbera til að greiða niður innviðaskuldina á svæðinu og tryggja vöxt og velsæld fyrir alla.

Fréttir og pistlar

Sjá allar fréttir

Skráning á póstlista!

Skráning á póstlista Innviðafélags Vestfjarða.

Please wait…

Takk fyrir að skrá þig!