Innviðafélag Vestfjarða fagnar þeim mikilvæga áfanga að heitt vatn, sem með aðstoð varmadæla dugar til að veita heitu vatni í öll heimili á Ísafirði, hafi fundist í Tungudal. Ennfremur fagnar Innviðafélag Vestfjarða staðfestu Orkubúsins og vonar að önnur stjórnvöld vinni hratt og örugglega að framgangi þess að klára megi það sem þarf til að hefja almenna nýtingu, t.d. leyfismál hvað varðar skipulag, framkvæmdir, og orkunýtingu.
“Þeir fiska sem róa,” segir Guðmundur Fertram Sigurjónsson, talsmaður Innviðafélagsins við tilefnið. “Jarðhitaátak stjórnvalda, sem hófst í tíð fyrrum orkumálaráðherra Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, og óx enn í tíð núverandi orkumálaráðherra Jóhanns Páls Jóhannssonar, sýnir hér hversu mikilvægt það er að fjárfesta í leit, rannsóknum, og virkjun þeirra auðlinda sem við á Íslandi erum svo lánsöm að eiga, þjóðinni til heilla.”
Ennfremur hvetur Innviðafélagið stjórnvöld til dáða í þessum málaflokki, og vonar að sambærilegan slagkraft verði að finna í öðrum mikilvægum innviðamálum, svo sem virkjun til raforku og uppbyggingu samgönguinnviða.

