Fagna bættu orkuöryggi á Vestfjörðum

Orkubú Vestfjarða samdi 9. september síðastliðinn við Landsvirkjun um kaup á forgangsorku til húshitunar á Vestfjörðum. Þetta þýðir að ekki þarf lengur að brenna olíu til húshitunar. Áður var notast við skerðanlega orku en þegar hún var ekki tiltæk þurfti að grípa í olíubrennslu. 

Þrátt fyrir að forgangsorka sé yfirleitt dýrari en skerðanleg orka eru miklar vonir bundnar við að nýfundinn jarðhiti á Ísafirði muni koma í staðinn fyrir raforku og að kaup Orkubúsins á forgangsorku séu eins konar millileikur þangað til hægt sé að fullnýta jarðhitann. 

“Innviðafélag Vestfjarða fagnar því að hreyfing sé komin á orkumálin, en hingað til hefur ótrygg orka og skortur á aðgengi að jarðhita valdið reglulegum óhöppum,” segir Guðmundur Fertram Sigurjónsson, talsmaður Innviðafélags Vestfjarða. “Nú er mikilvægt að halda vegferðinni áfram og fasa út olíudrifið varafl. Það er hægt að gera með því að auka rafrokuframleiðslu innan Vestfjarða og styrkja flutningskerfi raforku. Nú er lag fyrir atvinnulíf, sveitarfélög, orkufyrirtækin og ríkið að taka höndum saman og klára þau mál af sama myndarskap og gert var með jarðhitann.” 

Frétt RÚV um málið.

Skráning á póstlista!

Skráning á póstlista Innviðafélags Vestfjarða.

Please wait…

Takk fyrir að skrá þig!