Samkvæmt gildandi samgönguáætlun til fimm ára, fyrir árin 2020 – 2024, sem Alþingi samþykkti í júní 2020, átti að ljúka vegagerð yfir Dynandisheiði 2024. Tillaga ríkisstjórnarinnar að nýrri samgönguáætlun, sem lögð var fyrir Alþingi í fyrra, geir ráð fyrir verklokum 2026. Samkvæmt því seinkar vegagerðinni um tvö ár. Tillagan var ekki samþykkt síðasta vor og dagaði því uppi. Ný tillaga að samgönguáætlun fyrir næstu 15 ár, 2024 – 2038, verður lögð fram síðar i haust.
Í áætluninni frá 2020 kemur fram að leggja eigi 35,2 km af nýjum vegi og eru eftirstöðvar kostnaðar áætlaðar vera 5.800 m.kr. Til framkvæmdanna eru ætlaðar 500 m.kr. á árinu 2020. Ári síðar 1.050 m.kr. og síðan eru 800 m.kr. vegna 2022 Þá 1.400 m.kr. á árinu 2023 og 1.800 m.kr. á síðasta árinu 2024. Eftir stóðu 200 m.kr. sem eiga að koma 2025.
Framkvæmdir hófust í október 2020 að undangengnu útboði á 1. áfanga verksins, sem var 5,7 km langur kafli við Þverdalsá og 4,3 km kafli við Meðalnes. Kostnaðaráætlun var 2.625 m.kr. og samið var við IAV hf. Verklok við 1. áfangann voru 30. september 2021. Unnið var við áfangann á árinu 2021 og honum að mestu lokið á árinu. Bætt var við 2,4 km við Þverdalsá upp fyrir vegamótin við Bíldudalsveg. Í lok ársins 2021 hafi verið unnið fyrir 3.116 m.kr. sem er verulega meira en fjárveitingarnar 1.750 m.kr.
Sama var upp á teningnum 2022. Þá var lokið við 1. áfangann og viðbótina auk þess sem 2. áfanginn var boðinn út. Það var 12,6 km langur kafli og byrjað var á honum í október. Í lok ársins var kostnaður orðinn 4.064 m.kr. og var enn verulega hærri en fjárveitingarnar svo segja má að verkið hafi þá verið vel á undan áætlun.
Ársskýrsla Vegagerðarinnar fyrir framkvæmdir 2023 hefur ekki verið birt en svo virðist vera að hægt hafi verið á framkvæmdum það ár og ekki er enn búið að bjóða út 3. áfanga sem er lokaáfangi verksins 7,1 km langur. Miðað við fjárveitingar til verksins hefði verið hægt að bjóða út og hefja framkvæmdir við lokaáfangann á þessu ári og jafnvel ljúka honum að mestu.
Þess i stað eru svör Vegagerðarinnar á þá lund að ekki sé hægt vegna fjárskorts að segja til um hvenær verði boðið út og ekki gefnar vonir um að útboð verði fyrir áramót.
Seinkun verksins var svo staðfest í tillögunni til nýrrar samgönguáætlunar sem ríkisstjórnin lagði fyrir Alþingi 6. október 2023. Þar segir einfaldlega á bls. 83: „Fjárveiting er ætluð til að ljúka framkvæmdum við veginn um Dynjandisheiði á árunum 2024–2027“.
Í sundurliðun eftir árum kemur fram að 1. janúar 2024 hafi verið eftir kostnaður 4.350 m.kr. við nýjan veg yfir Dynjandisheiði. Lagt er til á árinu 2024 verði 1.150 m.kr. til verksins sem 650 m.kr. lægri fjárhæð en í gildandi áætlun. Þá er gert ráð fyrir 1.400 m.kr. á árinu 2025, 1.600 m.kr. á árinu 2026 og 200 m.kr. á árinu 2027.
Í þessari tillögu ríkisstjórnarinnar er því gert ráð fyrir verklokum fyrir áramótin 2026 og að lokafjárveitingin 200 m.kr. eigi að loka fjárhagsdæminu.
Þar sem nýja samgönguáætlunin hefur enn ekki verið samþykkt gildir sú sem samþykkt var árið 2020. Engu að síður virðist ljóst að stjórnvöld hafa ekki farið eftir henni og vegagerðin á Dynjandisheiði hefur ekki fengið það sé sem verkinu er ætlað.

