Í aðsendri grein á Vísi skrifar Tinna Rún Snorradóttir, rannsóknar- og þróunarstjóri hjá Bláma, um mikilvægi fjárfestinga í samgöngum á Vestfjörðum. Nú þegar atvinnuvegirnir vaxa og aukið framboð er af spennandi störfum, er ungu fólki kleift að flytja aftur heim með atvinnutækifæri við sitt hæfi.
Þessi vöxtur á undanförnum árum gerði mér kleift að flytja aftur heim eftir háskólanám erlendis og finna vinnu sem passaði menntun minni og áhugasviði sem var ekki svo sjálfsagt hér á árum áður.
Næsta mál á dagskrá séu fjárfesting í samgöngum svo svæðið verði raunverulega samkeppnishæft.
Nútímasamfélag verður að geta boðið upp á tryggar og öruggar samgöngur þar sem íbúar sem og aðrir þurfa ekki að hafa áhyggjur af snjóflóðahættu eða óvissu um hvort bíllinn komist í gegnum snjóskafla á hálendisvegum.
Fjárfesting í samgöngubótum er besta leiðin til að gera Vestfirði að samkeppnishæfum búsetukosti fyrir ungt fólk sérstaklega núna þegar fjölbreytt og spennandi atvinnutækifæri eru í boði á svæðinu.

