Eyjólfur Ármannsson, nú samgönguráðherra, haustið 2024 í Hörpu við opnun á vefsíðu Vestfjarðalínunnar.

Kristinn H. Gunnarsson, ritstjóri vestfirska fréttamiðilsins Bæjarins Besta ritar um stefnumörkun nýrrar ríkisstjórnar á sviði samgöngumála. Hann hvetur forsætisráðherra og samgönguráðherra „…til þess að hitta forsvarsmenn atvinnulífsins á Vestfjörðum í Innviðafélagi Vestfjarða og vinna að samgöngusáttmála fyrir Vestfirði. Planið liggur fyrir. Vestfirðingar eru vel undirbúnir.“

Kristinn minnir á að nýr samgönguráðherra, Eyjólfur Ármannsson, hafi lögheimili á Hrafnabjörgum í Lokinhamradal í Arnarfirði og sé þingmaður kjördæmisins. Fjörir af sjö þingmönnum kjördæmisins hafa lögheimili á Vestfjörðum, allir stjórnarliðar. „Þeim er öllum vel ljóst hvað þörfin fyrir stórfellt átak í samgöngumálum Vestfjarða er mikil og þeir þekkja allir þau verkefni í vegagerð og jarðgangagerð sem Vestfirðingar kalla eftir til þess að jafna leikinn til jafns við þær aðstæður sem aðrir landsmenn velflestir búa við en Vestfirðingar ekki,“ segir ritstjórinn.

Grein Kristins er hér: https://www.bb.is/2024/12/ny-rikisstjorn-samgonguradherra-fra-vestfjordum/

Skráning á póstlista!

Skráning á póstlista Innviðafélags Vestfjarða.

Please wait…

Takk fyrir að skrá þig!