„Skoðað í haust“ hvort Dynjandisheiði verður boðin út

Dynjandisheiði er eitt þeirra verka sem bjóða átti út á árinu, en líklegt er að ekki verði af. Þetta kom fram í frétt Stöðvar 2 / Vísis um málið.

„Þegar fréttastofan leitaði skýringa frá Bergþóru Þorkelsdóttur vegamálastjóra hafnaði hún sjónvarpsviðtali en sagði að það yrði skoðað í haust hvort eitthvert þessara verka yrði boðið út á þessu ári. 

Útboð í haust þýddi að framkvæmdir gætu vart hafist fyrr en á næsta ári, þannig að þetta ár virðist vera fyrir bí.

Einstaka stjórnarþingmenn hafa hins vegar opinberlega gefið skýringar í fréttaviðtölum. Helsta ástæðan sé að kostnaður við Hornafjarðarfljót sé kominn langt fram úr fjárheimildum. Til að fjármagna það verk þurfi að flytja peninga úr öðrum verkum.“

Meira á Vísi.is

Skráning á póstlista!

Skráning á póstlista Innviðafélags Vestfjarða.

Please wait…

Takk fyrir að skrá þig!