Í grein sem Elías Jónatansson, Orkubússtjóri, skrifaði á BB.is segir:
„Því miður stefnir í það að á árinu 2024 fimmtánfaldist olíunotkun Orkubús Vestfjarða frá árinu í ár, fari úr 220 þús. lítrum í 3,4 milljónir lítra. Aukning í losun gróðurhúsalofttegunda verður þá 9.200 tonn. Hægt er að vinna bug á þessu vandamáli og sóun fjármuna með virkjun innlendrar orku.“

