Innviðafélag Vestfjarða og Blámi nýsköpunarfélag hefja samstarf til að flýta uppbyggingu og fjármögnun nauðsynlegra samgönguinnviða og að tryggja betur nauðsynlegt orkuöryggi vestfjarða. Lélegir samgöngu- og orkuinnviðir hamla verðmætasköpun, vexti og velsæld Vestfjarða, segir Guðmundur Fertram Sigurjónsson talsmaður verkefnisins.
Í dag undirritaðu Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis og talsmaður Innviðafélags Vestfjarða og Þorsteinn Másson, framkvæmdastjóri Bláma, samstarfssamning milli nýstofnaðs Innviðafélags Vestfjarða og Bláma. Undirritunin fór fram á opnum fundi í Vestfjarðarstofu í dag.

Atvinnulíf Vestfjarða hefur margfaldast að stærð undanfarin ár, með auknum umsvifum og fjárfestingu í nýsköpun, lagareldi og þjónustu. Velta atvinnulífsins á Vestfjörðum þrefaldaðist á árunum 2016-2023, og er hækkandi húsnæðisverð og flutningur á svæðið til marks um efnahagsævintýrið sem þar á sér stað.
Samstarfssamningur Bláma við Innviðafélag Vestfjarða nær til greininga og ráðgjafar tengda framtíðarverkefnum Innviðafélagsins. Mun Innviðafélagið kosta þá vinnu.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra:
„Við höfum lagt áherslu á að styðja við Vestfirði á undanförnum misserum, bæði með skýrslu sem unnin var í fyrra undir forystu Einars K. Guðfinnssonar og á vettvangi Bláma. Það er ánægjulegt að undirrita formlegt samstarf Bláma og Innviðafélags Vestfjarða, sem stofnað var að frumkvæði Guðmundar Fertram, og samanstendur af öllum stærstu fyrirtækjum Vestfjarða. Verkefnin sem heyra undir þessi félög munu styrkjast af þessu samstarfi.
Það er skynsamlegt að skoða samgöngu- og orkuinnviði í samhengi. Á sama tíma og við verðum að taka á orkuinnviðum heildstætt þá verðum við líka að líta til einstakra svæða. Þetta samstarf mun styrkja Vestfirði. Vestfirðir þurfa bæði græna orku og góða samgönguinnviði til að vera samkeppnishæf í framtíðinni.“
Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis og talsmaður Innviðafélags Vestfjarða:
„Það er sóknarhugur í okkur Vestfirðingum. Efnahagsævintýri Vestfjarða er raunverulegt og sá vöxtur nýtist þjóðarbúinu. Hins vegar kallar áframhaldandi verðmætasköpun og vöxtur á stóraukinn kraft í uppbyggingu samgönguinnviða fjórðungsins.
Við trúum því að öflugir innviðir séu forsenda sterkra samfélaga. Finna verður leiðir til fjármögnunar samgönguinnviða Vestfjarða og greiða niður háa innviðaskuld fjórðungsins. Lélegir samgöngu- og orkuinnviðir hamla áframhaldandi verðmætasköpun, vöxt og velsæld Vestfjarða. Það kallar á samstarf atvinnulífs, íbúa og hins opinbera.“
Innviðafélag Vestfjarða er nýstofnað félag sem mun draga fram mikilvægi þess að flýta uppbyggingu og fjármögnun samgönguinnviða á Vestfjörðum og benda á leiðir til þess. Vestfirðir hafa lengi setið á hakanum. Að baki félaginu standa kraftmikil fyrirtæki á Vestfjörðum sem öll vilja tryggja vöxt og velsæld samfélagsins.
Blámi nýsköpunarfélag á sviði orkunýtingar er samstarfsverkefni Landsvirkjunar, Orkubús Vestfjarða, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og Vestfjarðastofu. Félaginu er ætlað að hvetja og styðja við orkuskipti í samgöngum og sjávartengdum iðnaði. Blámi leiðir þannig saman einstaklinga og fyrirtæki sem geta unnið saman við það að afla alþjóðlegs fjármagns til tilrauna, rannsókna og þróunar á orku- og loftslagsvænum lausnum.

