Björn Hembre forstjóri Arnarlax segir í viðtali við Morgunblaðið, sem birtist í sérblaði um lagareldi, að hann telji að að útflutnings verðmæti eldislax geti jafnvel farið fram úr þorskinum á næstu fjórum eða fimm árum.
Í fyrra var framleiðslan 43.500 tonn og Björn segir að það muni aukast á næstu árum og þess sé skammt að bíða að framleiðsla laxeldis í sjó rjúfi
70.000 tonna múrinn.
Er þá eftir að bæta við þeim risastóru verkefnum sem fyrirhuguð eru í landeldi og ljóst að verðmætasköpun greinar innar allrar verður gríðarleg:
„Við sjáum að laxinn er orðinn næst verðmætasta fiskveiðitegundin á eftir þorskinum en laxinn er farinn upp fyrir útflutningsverðmæti loðnunnar. Ég hugsa að útflutnings verðmæti eldislax geti jafnvel farið fram úr þorskinum á næstu fjórum eða fimm árum,“
Arnarlax framleiddi um 18.000 tonn af laxi árið 2023 og er útlit fyrir að félagið framleiði um 13.000 tonn á þessu ári en stefnt er að því að ná 25.000 tonna markinu í náinni framtíð.
Starfsmenn Arnarlax eru orðnir um 170 talsins og þar af eru um 70% sem lifa og starfa á Vestfjörðum.

