Vindáttin blæs nú með Vestfjörðum

Í Morgunblaðinu í síðustu viku er umfjöllun um það framfaraskeið sem hafið er á Vestfjörðum eftir langt tímabil með hnignun og samdrætti.

Það er Sigurður Bogi Sævarsson sem vekur athygli á þessum viðsnúningi og ræður við Gylfa Ólafsson, nýkjörinn formaður Fjörðungssambands Vestfirðinga.

Vindáttin blæs nú með Vestfjörðum,“ segir Gylfi Ólafsson

Vestfjarðalínan og
nýjar leiðir í fjármögnun

Gylfi vekur athygli á ályktunum fjórðungsþings og að þar eru stjórnvöld hvött til þess að leita nýrra leiða við fjármögnun á uppbyggingu innviða vestra. Er í því sambandi vikið að sjónarmiðum Innviðafélags Vestfjarða, sem í fyrri viku kynnti hugmyndir um að litið verði á uppbyggingu jarðganga og annarra samgöngumannvirkja á Vestfjörðum sem sérstakt og afmarkað viðfangsefni. Í því sambandi er talað um Vestfjarðalínuna og undir formerkjum hennar verði gerður öruggur láglendisvegur um byggðir vestra sem sé jafnframt tenging við höfuðborgarsvæðið. Þá er jafnframt hvatt til þess að nýjar leiðir til fjármögnunar stórframkvæmda í vegagerð, svo sem í jarðgangagerð, verði ræddar.

Haft er eftir Gylfs Ólafssyni að góðar samgöngur séu „forsenda margs hér fyrir vestan, svo sem ferðaþjónustu. Sú starfsemi hefur breytt mörgu hér, svo sem að hingað á Ísafjörð koma 200 þúsund ferðamenn á ári með skemmtiskipum. Hér í bæ erum við líka búin að koma málum svo fyrir að álag sem fylgir skipunum, svo sem á umhverfi og bæjarlíf, vegna fjölda farþega er orðið hóflegt. Aldrei meira en 5.000 manns manns á dag og skipakomur eru jafnari en var.“

Skráning á póstlista!

Skráning á póstlista Innviðafélags Vestfjarða.

Please wait…

Takk fyrir að skrá þig!