Okkur brast kjark

Eftirfarandi grein skrifaði Guðmundur Fertram Sigurjónsson, talsmaður Innviðafélags Vestfjarða. Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu, 31. október.

Mörg álitaefnin bíða komandi þingkosninga og margt brennur á mönnum. Húsnæðis- og vaxtamál, heilbrigðismál, skólamál, og svo mætti lengi telja. Sama gildir fyrir Vestfirðinga. Eitt er þó ofarlega í huga fyrir vestan, það eru samgönguinniviðir. Bágt ástand þeirra hvílir á með þunga. 

Síðustu ár hafa Vestfirðir notið velgengni og vaxtar í formi nýsköpunar og kraftmikils frumkvöðlastarfs. Tala mætti um efnahagsævintýri, sem byggir á miklum uppgangi Kerecis, fiskeldi og velgengni fyrirtækja á svæðinu. Kraftur mannauðs og fyrirtækja hefur skilað gríðarlegri aukningu skatttekna. Skatttekjum sem þjóðin þarf á að halda til þess m.a. að styrkja mennta- og heilbrigðiskerfið.

Efnahagsævintýrið hvílir á innviðum 

Áframframhald á efnahagsævintýri Vestfjarða byggir á atvinnufrelsi og styrku rekstrarumhverfi, en ekki síst bættum samgönguinnviðum. Framtíðarsýn samgöngubóta höfum við kallað „Vestfjarðalínuna“, sem er gerð láglendisvegar og tengir atvinnusvæði á Vestfjörðum við Hringveginn.

Vestfjarðalínan er ákall um gerð sérstaks samgöngusáttmála fyrir Vestfirði um fjármögnun og öflugar framkvæmdir á kjörtímabilinu. Við Vestfirðingar teljum að með breyttum viðhorfum og nálgun uppbyggingar samgönguinnviða megi flýta framkvæmdum, finna fjármögnunarleiðir og forgangsraða með sanngjörnum hætti.

Mynd: Morgunblaðið

Okkur brast kjarkur

En betri samgönguinnviðir skipta einnig sköpum fyrir þjóðina alla. Síðasta áratug höfum við safnað upp verulegri innviðaskuld. Athyglisvert er að rýna ísamaburðartölur sem Efnahags og framfarastofnunin, OECD, hefur tekið samanum hlutdeild innviðafjárfestingar í landsframleiðslu. Sú mynd sýnir hvað fjárfesting í samgöngumannvirkjum var öflug á Íslandi fyrir efnahagshrunið. Síðan varð hrun í fjárfestingum og við Íslendingar tókum að safna upp verulegri innviðaskuld. Það var þrátt fyrir að ná okkur aftur á strik efnahagslega. Þessu verður eiginlega best lýst þannig að okkur hafi brostið kjarkur.

Þessu þarf að breyta. Kjósendur þurfum að blása kjark í brjóst ráðamanna til aukinnar uppbyggingar samgönguinnviða. Ef við viljum áfram standa fremst meðal þjóða í lífskjörum verðum við að ráðast í verulega uppbyggingu samgönguinnviða. Það skiptir gríðarlega miklu máli fyrir Vestfirðinga ogþjóðina alla.

Skráning á póstlista!

Skráning á póstlista Innviðafélags Vestfjarða.

Please wait…

Takk fyrir að skrá þig!