Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar skrifar skoðanapistil á Vísi í dag 8. nóvember sem ber yfirskriftina „Krafa um árangur í atvinnu- og samgöngumálum“.
Arna Lára sem leiðir lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi segir það grundvallarkröfu að fjárfestingar í samgöngumálum nái meðaltali OECD ríkja árið 2030. Með því að hækka viðmiðið í 1% af vegri landsframleiðslu fást 20 milljarðar til viðbótar við núverandi framlög.
Frambjóðandinn segir tillögur Innviðafélags Vestfjarða um Vestfjarðarlínu vera framsýnar. Þær séu um gerð sérstaks samgöngusáttmála fyrir Vestfirði sem gangi út á að lyfta samgöngum á samkeppnishæfan stall á næstu 10 árum. Þar sé gert ráð fyrir jarðgangnagerð og vegabótum sem til þarf til að stytta ferðatíma, auka umferðaröryggi og draga úr viðhaldsþörf.
„Þegar atvinnulífið tekur forystu á þennan hátt er mikilvægt að stjórnvöld leggi við hlustir, því afar brýnt er að komast út úr því framkvæmdastoppi sem við búum nú við.“
Arna Lára segir að Samfylkingin taki frumkvæði Innviðafélagsins fagnandi enda er það í takti við þann kraft og þá bjartsýni sem nú ríkir á Vestfjörðum. „Fólkið í landinu gerir kröfu um árangur í samgöngumálum. Byrjum aftur að bora og tryggjum að alltaf séu framkvæmdir við 1-2 jarðgöng í gangi á hverjum tíma,“
Pistillinn á Vísi er hér: Krafa um árangur í atvinnu- og samgöngumálum – Vísir

