Jón Páll Hreinsson bæjarstjóri í Bolungarvík skrifar skoðanagrein á Vísi í dag um samgöngumál á Vestfjörðum:
„Undanfarin ár hafa Vestfirðir sótt í sig veðrið. Fólki hefur fjölgað og umsvif atvinnulífs hafa aukist og á næstu árum geta Vestfirðir skilað hundruðum milljarða í sameiginlega sjóði landsmanna. Það sem kemur í veg fyrir að slíkt verði að veruleika er skortur á innviðum. Eðlilegir innviðir sem felast í að tryggja Vestfjörðum bættar samgöngur.“
„Nýlegar vegaframkvæmdir, þótt góðar séu, duga skammt til að bæta upp þessa innviðaskuld. Hugmyndir Innviðafélags Vestfjarða Vestfjarðalínu og gerð sérstaks samgöngusáttmála fyrir Vestfirði, er ætlað að jafna þessa innviðaskekkju,“ segir Jón Páll. „Því það er þannig að þegar Vestfjörðum gengur vel, þá gengur Íslandi vel.“

