Miðflokkurinn: Þannig rímar stefna okkar beint við hugmyndir Innviðafélags Vestfjarða

Í aðsendri grein á BB.is skrifa Ingibjörg Davíðsdóttir, oddviti í Norðvestur kjördæmi, og Gunnar Bragi Sveinsson, 2. sæti í Norðvestur kjördæmi, að stefna Miðflokksins rími beint við hugmyndir Innviðafélags Vestfjarða.

Mánudaginn 11. Nóvember sl.  hélt Innviðafélag Vestfjarða fjölmennan og góðan fund um samgöngumál á Vestfjörðum. Áherslur félagsins koma m.a. fram í sk. Vestfjarðalínu þar en í kynningu hennar segir m.a.: “ Vestfjarðalína er ákall um gerð sérstaks samgöngusáttmála fyrir Vestfirði þar sem samgöngum er lyft á viðunandi stall á næstu 10 árum.”

Þessi hugsun Vestfirðinga er algerlega í takti við áherslur Miðflokksins í samgöngumálum. Í fyrsta lið í kosningaáherslna Miðflokksins í samgöngumálum segir: “Rjúfum kyrrstöðuna á landsbyggðinni. Koma þarf vinnu við jarðgöng aftur af stað og rjúfa þannig kyrrstöðuna. Forma skal staðbundna samgöngusáttmála þar sem horft er til landshluta og framkvæmda innan þeirra með heildstæðum hætti.”

Þá skrifa þau að skoða verði í fullri alvöru að hluti af þeim skatttekjum sem svæði skapa renni til innviðauppbyggingar á viðkomandi svæði.

Lesa má greinina í heild á BB.is.

Skráning á póstlista!

Skráning á póstlista Innviðafélags Vestfjarða.

Please wait…

Takk fyrir að skrá þig!