Sjálfstæðisflokkurinn: Við styðjum hugmyndir Innviðafélags Vestfjarða

Í aðsendri grein á Vísi.is skrifar Ólafur Adolfsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, um samgöngumál á Vestfjörðum.

Mikil verðmætasköpun á sér stað á Vestfjörðum, meðal annars vegna aukinnar atvinnuuppbyggingar og þrótti í nýsköpun á undanförnum árum, en vegirnir, sem sumir voru lagðir fyrir hálfri öld eru víða ófullnægjandi og eru íbúum og atvinnulífi til trafala. Fundur Innviðafélags Vestfjarða var vart búinn þegar aurskriður fóru að falla á vegina með þeim afleiðingum að þeir lokuðust á norðanverðum Vestfjörðum.

Þá segir Ólafur að það að bregðast við þessu sé eitt af fogangsatriðum Sjálfstæðisflokksins.

 Við styðjum hugmyndir Innviðafélags Vestfjarða enda byggist Sjálfstæðisstefnan m.a. á því að hjálpa fólki til sjálfshjálpar, þar sem það er nokkur kostur.

Greinina í heild má lesa á Vísi.is

Skráning á póstlista!

Skráning á póstlista Innviðafélags Vestfjarða.

Please wait…

Takk fyrir að skrá þig!