Orkubú Vestfjarða: 20 km jarðstrengur til Súðavíkur

Halldór Halldórsson og Elías Jónatansson undirrita samningninn. Mynd: Þorsteinn Haukur.

Í gær var undirritaður samningur milli Orkubús Vestfjarða og Íslenska kalkþörungafélagsins ehf á Bíldudal um lagningu á nýjum 33kV jarðstreng frá Ísafirði til Súðavíkur. Sagt er frá þessu á Bæjarins besta.

Kostnaður er áætlaður um 1,4 milljarðar króna og leggur Ískalk fram bankaábyrgð fyrir einum milljarði króna og hefur Orkubúið 24 mánuði til þess að leggja strenginn. Halldór Halldórsson, forstjóri Ískalk segir að félagið greiði samkvæmt sérstakri gjaldskrá sem geri það að verkum að það greiði kostnaðinn við strenginn á 10 – 12 árum.

Núverandi raflína er loftlína frá 1956 sem liggur yfir hátt fjall milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar og getur hún ekki flutt það rafmagn sem ný kalkþörungaverksmiðja í Súðavík þarf á að halda.

Hönnunarvinna stendur yfir varðandi hús og tækjabúnað og vonast er til að útboð geti farið fram síðari hluta vetrarins og að verksmiðja geti tekið til starfa um mitt ár 2027. 

Skráning á póstlista!

Skráning á póstlista Innviðafélags Vestfjarða.

Please wait…

Takk fyrir að skrá þig!