Samfélagsspor Vestfjarða síðustu fimm ára var 25.5 milljarðar og hefur meira en fimmfaldast á þeim tíma. Þetta kom fram á fundi Innviðafélags Vestfjarða sem haldinn var í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði. Með samfélagsspori er átt við þá upphæð sem Vestfirðir leggja til ríkissjóðs umfram það sem kemur til baka.

Íbúar Vesturbyggðar fjölmenntu á fundinn sem bar yfirskriftina „Efnahagsævintýrið á Vestfjörðum“. Fundurinn hófst á erindi Soffíu Eydísar Björgvinsdóttur meðeiganda hjá KPMG þar sem hún kynnti niðurstöður á greiningu á skatta- og samfélagspori Vestfjarða. Í erindi hennar kom fram að árið 2019 skilaði hver íbúi Vestfjarða 1.49 milljónum króna til ríkisins en árið 2023 var sú tala komin í 2.06 milljónir króna. Sé þetta sett í samhengi koma 3.1% af útflutningstekjum Íslands frá Vestfjörðum en Vestfirðingar teljast 1.9% íbúa landsins.

Því næst kynnti Hjörtur Methúsalemsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Arnarlaxi framtíðarsýn fiskeldis á Vestfjörðum fram til ársins 2035. Hjörtur lagði áherslu á að lagarammi greinarinnar yrði vera skýr, mesta hindrunin væri stefnuleysi stjórnvalda varðandi fiskeldi væri mikil hindrun. Hann fór svo yfir nauðsynlega innviði til að bjartasta framtíðarsýn geti raungerst og treystir á samheldni Vestfirðinga til að byggja öflugt samfélag, innviði og atvinnulíf. Lagði hann áherslu á uppbyggingu innviða svo Vestfirðir gætu orðið eitt atvinnusvæði en nú starfa 900 manns við fiskeldi á Vestfjörðum og gangi hógværasta spá eftir verða starfsmenn eldisins á Vestfjörðum orðnir 2.500 manns árið 2032. Á sama tíma myndu skattar og gjöld fiskeldisins fara úr þremur upp í 20 milljarða króna.

Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu stýrði fundinum en opið var fyrir fyrirspurnir úr sal.
Vestfirðingar hafa undanfarin ár bent á innviðaskuld sem hefur safnast upp í fleiri áratugi og kallað eftir að hún verði jöfnuð með átaki í samgöngum. Á fyrirlestrum dagsins mátti ljóst vera að sannarlega er borð fyrir báru að jafna innviði Vestfjarða við aðra landshluta eins og Innviðafélag Vestfjarða hefur ítrekað vakið athygli á.

